Blake Griffin mun æfa með Los Angeles Clippers í dag í fyrsta sinn eftir að hafa verið tognaður aftan í læri og puttabrotinn.
Félagið þarf svo að láta vita þegar hann verður leikfær því hann fer þá sjálfkrafa í fjögurra leikja bann vegna þess að hann lúskraði á Mathias Testi, starfsmanni Clippers, í janúarmánuði.
Griffin tognaði aftan í læri gegn Los Angeles Lakers á jóladag síðastliðinn og svo puttabrotnaði hann 23. janúar og hefur hann þá ekki spilað körfuboltaleik í 94 daga.
Heimild: Dan Woike á Twitter